Logo

Lögfræðingur

Umsóknarfrestur 10.03.2025
Fullt starf

Norðurorka óskar eftir að ráða öflugan einstakling í starf lögfræðings. Um er að ræða nýtt og spennandi starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á að leiða lögfræðitengd verkefni félagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umsjón með lögfræðitengdum málefnum í starfsemi Norðurorku
  • Lögfræðileg ráðgjöf innan fyrirtækisins
  • Umsagnir um málefni fyrirtækisins til Alþingis og annarra stjórnsýslustofnana
  • Persónuverndarfulltrúi Norðurorku
  • Samningagerð og umsagnir
  • Vöktun á þróun löggjafar um orku- og veitutengd málefni
  • Samskipti við hagsmunaaðila, ráðuneyti og opinberar stofnanir

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Embættispróf eða meistarapróf í lögfræði
  • Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu
  • Lögfræðileg starfsreynsla á sviði orku- og veitumála og/eða stjórnsýsluréttar er kostur
  • Þekking og innsýn í lagaumhverfi og starfsemi orku- og veitugeirans er kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæði og öguð vinnubrögð
  • Færni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Góð hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku

Starfið heyrir undir forstjóra Norðurorku. Upplýsingar um það veitir Eyþór Björnsson í netfanginu: eythor.bjornsson@no.is.

Tengiliður

eythor.bjornsson@no.is