Logo

Tæknimaður notendaþjónustu

Umsóknarfrestur 30.04.2025
Fullt starf

Um nýtt starf er að ræða, í Upplýsingatæknideild Norðurorku.

Starfið felur m.a. í sér skráningu og úrvinnslu verkbeiðna, viðgerðir, gerð leiðbeininga og ferla, aðstoð við notendur og þjónustu við hug- og vélbúnað.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Aðgangsveitingar í kerfum
  • Móttaka, greining og eftir atvikum úrvinnsla verkbeiðna
  • Umsjón með eftirlits- og aðgangskerfum
  • Skjölun ferla, gerð leiðbeininga og skráning búnaðar og kerfa
  • Þjónusta við og rekstur hugbúnaðarkerfa og aðstoð við starfsfólk

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Tæknimenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Almenn ökuréttindi
  • Góð þekking á tölvukerfum sem byggja á Microsoft
  • Þekking á Windows stýrikerfinu
  • Reynsla af vinnu skv. vottuðum öryggis- og gæðakerfum er kostur
  • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
  • Geta til að fylgja skilgreindum ferlum
  • Áhugi og geta til að tileinka sér nýjungar og fylgjast með því sem er að gerast á sviði upplýsingatækni

Starfið heyrir undir deildarstjóra upplýsingatækni, Ásmund Agnarsson, sem veitir allar frekari upplýsingar.

Tengiliður

asmundur.agnarsson@no.is