Sérfræðingur í upplýsingakerfum veitna
Umsóknarfrestur 05.08.2025
Fullt starf
Norðurorka auglýsir eftir tæknilega sinnuðum sérfræðingi sem er fljótur að tileinka sér nýja færni og hefur ríka þjónustulund. Æskilegt er að viðkomandi hafi góða reynslu af hönnun veitukerfa, úrvinnslu verkteikninga og eða vinnu í GIS kerfum. Fram undan eru mörg spennandi verkefni sem tengjast hönnun veitukerfa Norðurorku og GIS vinnslu. Starfið er á þjónustusviði og næsti yfirmaður er verkefnastjóri upplýsingakerfa veitna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samskipti við verktaka og viðskiptvini Norðurorku
- Upplýsingavinnsla tengt veitukerfum og þjónustu innan Norðurorku
- Hanna og teikna lagnakerfi
- Uppfæra upplýsingar í GIS kerfum Norðurorku
- Upplýsingagjöf til innri og ytri viðskiptavina
- Önnur verkefni sem til falla
Menntunar- og hæfniskröfur
- Land-, tækni- eða verkfræði
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni
- Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti
- Mjög góð þekking á upplýsingatækni
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
- Reynsla af hönnun veitukerfa er kostur
- Reynsla af landupplýsingarkerfum (GIS) er kostur
- Geta til að vinna sjálfstætt og halda mörgum boltum á lofti
- Geta til að tileinka sér nýja færni og miðla henni til annarra
Umsókn skal fylgja ferilskrá, afrit af prófskírteinum og önnur þau gögn sem umsækjandi metur nauðsynleg. Umsjón með ráðningunni hefur mannauðsstjóri. Upplýsingar um starfið veitir Arnaldur B. Magnússon, sviðsstjóri þjónustusviðs, í netfanginu hér til hliðar eða í síma 460 1300.
Tengiliður
arnaldur.birgir.magnusson@no.is